föstudagur, febrúar 25, 2005

...if you're fond of sand dunes and salty air...

Magnað hvað smá sólskin og góð tónlist í iPodnum geta komið manni í gott skap þegar maður er úti að labba... ahhh.

Mig langar í víðar gallabuxur.

Núna kl. 17:00 mun ég halda á fund vinar míns Kára Stefáns og hann mun væntanlega gefa mér eitthvað gott í gogginn og áfengi til að skola því niður með, þvílíkur lúxus.
Góður dagur í dag.

miðvikudagur, febrúar 23, 2005

Stelpan sem býr við hliðina á mér er með flottan rauðan lampa í gluggakistunni sinni sem hún hefur stundum kveikt á, við sérstök tækifæri.
Ég get ekki að því gert að raula með sjálfri mér: Roxanne....

Annars er ekkert að frétta, var bara að vinna í dag og er að fara að koma mér í að gera skriftaræfingu á nýju kanji táknunum sem við eigum að kunna fyrir morgundaginn.
Eða jú, það er eitt að frétta, stelpukríli nokkuð ku vera að koma í sollinn í höfuðborginni á laugardaginn, sú skal aldeilis fá að verða vígð inn í undirheima Reykjavíkurborgar.

þriðjudagur, febrúar 22, 2005

Í allan dag bjóst ég einhvern veginn við því að draugaskip (með kaptein Jack Sparrow innanborðs, preferably) kæmi skyndilega siglandi út úr þokunni sem grúfði sig yfir borgina... ferlega dularfullt veður eitthvað.

Mér finnst svolítið fyndið að ég kunni að segja "vinsamlegast deyðu" á japönsku. Einnig kann ég að segja "eigum við að deyja saman?" Okkur er í alvörunni kennt þetta í kennslubókinni.
Þetta er kannski praktískt að kunna ef maður skyldi leggja leið sína til Japan, miðað við þá bylgju af sjálfsmorðum ungs fólks sem þar hefur riðið yfir að undanförnu?

En já, best að fara að glápa á danskt stofudrama sem involverar dr. Hansen og frk. Sörensen...

miðvikudagur, febrúar 16, 2005

I am so smart, I am so smart. S-M-A-T... uh, I mean, S-M-A-R-T...

Nei, ég er líklega ekki svo gáfuð. Svaf yfir mig í dag og fór ekki í skólann, fór í staðinn í gymmið og eyddi eftir það deginum í sjálfsdekur hið ýmsasta, maður verður nú að vera sætur í partýinu sínu... en já, tvö próf á morgun og lærdómur í dag = enginn. En ég redda mér, ég geri það alltaf.. þó ég þurfi að lesa aðeins fram á nótt.

En bráðum: ANTM!!! OMG!!!!

-þeir sem ekki skilja munu aldrei skilja...

p.s. mér tókst að setja inn haloscan eftir heilmiklar pælingar og fjarlægingu á villukóða... klapp fyrir mér.

mánudagur, febrúar 14, 2005

Bloggað úr höllinni

Í upphafi var netlaust og netlaust var hjá Elínu og netlaus var Elín. En svo kom netið og Elín sá að það var gott.

Eftir að hafa fiktað í öllum mögulegum og ómögulegum netstillingum á tölvunni og átt í æsilegu símasambandi við netumsjónarmann Garðanetsins kom í ljós að mig vantaði öðruvísi snúru. Það var svolítið pirrandi að fatta það, sérstaklega þar sem ég átti til slíka snúru en hún hafði ekki virkað uppi á Vesturgötu en hérna virkar hún... en vá, hver nennir að lesa blogg um netsnúrur. Þegiðu Elín.

Í dag labbaði ég úti í 3 og hálfan tíma og hlustaði á góða tónlist og vann mér inn pening í leiðinni.
Ekki leiðinlegt. Eða jú, reyndar pínu því ég varð mjög blaut í fæturna. Ég er s.s. að vinna við að bera út póst og þegar ég hlusta á skemmtilega tónlist þá gleymi ég því að ég sé að vinna, og sú staðreynd að ég sé að vinna lætur mig gleyma því að ég sé að hreyfa mig.
Ég á eftir að verða alveg gapandi hissa þegar ég fæ útborgað! Og í ofanálag er ég búin að léttast um 2 kg síðan ég byrjaði að vinna, en af nógu er að taka og betur má ef duga skal eins og karlinn sagði.

Ég djammaði 3 kvöld í röð í síðustu viku! Slíkt hefur ekki gerst í manna minnum. KosningaRöskvan kom sterk inn á fimmtudaginn með ódýran bjór og mikið stuð, færri sögum fór af 3ja manna eftirpartíinu þar sem gin var sötrað og mikið röflað... jájá.
Á föstudagskvöldið var afmæli hjá Auði og eftir það var haldið á Kofann, eftir stutta viðkomu á Kaffibarnum þar sem litlar stelpur í skærlituðum "tube tops" og þröngum hvítum buxum áttu óskipta athygli mína. Á Kofanum, á Kofanum... var skemmtilegt að vera. Við Særós röltum saman heim um 6 leytið.
Á laugardagskvöldið höfðu fregnir borist af því að stripp show eitt mikið myndi eiga sér stað á Kofanum og ekki missir maður af svoleiðis, ónej. Við Björk hittumst áður á Prikinu til að sötra ódýran bjór og þar kynntumst við því að aldrei er of varlega farið í samskiptum við drukkna karlmenn er bjóða manni að setjast niður við spil. Annar gaurinn var reyndar ágætur og vildi bara spila og spjalla. Hinn notaði tækifærið þegar Björk fór á barinn (ég var ekki komin þá) og tók símann hennar, fór með hann inn á karlaklósett, slökkti á honum og henti honum í ruslið.
Hvernig dettur fólki í hug að gera svona hluti? Svo þegar hún tók eftir því að síminn væri horfin spurði hún þá út í þetta og þeir neituðu öllum sökum og létu dólgslega. Sem betur fer komst þetta upp, með góðri hjálp starfsstúlkna Priksins, Björk fékk símann sinn og við skunduðum kátar á Kofann.
Strip showið var ólýsanlegt, vona bara að einhver hafi tekið myndir.
Eftir strippið var greinilega kominn einhver sveittur fílingur í karlmenn staðarins því að á einum tímapunkti var yfir helmingur karlmannanna á dansgólfinu kominn úr að ofan.
Sveitt sveitt sveitt. Ég var komin heim um 7 leytið.
Í stuttu máli: ég gerði nákvæmlega ekkert annað um helgina en djamma og sofa. Ekki sérlega pródúktívt en ofboðslega gaman. Einhver lítill djammpúki er greinilega að brjótast út.

Ég hefi hugsað mér að halda innflutningspartí föstudaginn næstkomandi. Mun gleðin hefjast uppúr kl 20 í íbúð 308, Eggertsgötu 24. Ég ætla að senda boðs-sms á fólk, ef þú þekkir mig og færð ekki sms en langar samt að koma þá talarðu bara við mig, ég verð því miður að viðhafa fjöldatakmörkun þar sem pláss og sæti eru af mjög skornum skammti en auðvitað er alltaf gaman að sjá gott fólk. Lybbagellur eru ekki inni í þessu partíi, þið fáið einkapartí seinna, þið eruð svo ansvíti margar...

*dæs* sumt fólk er víst þannig að það langar til að gefa manni innflutningsgjafir þegar maður heldur innflutningspartí. Þeirra vandamál, en hérna er allavega örlítill listi yfir hluti sem mig vantar ennþá í búið:

*hraðsuðukönnu
*þennan standlampa (hefði samt svo svarið að hann héti "Orgel" í búðinni... o jæja...)
*"dauða" gúmmíönd úr ranimúsk (hún er svört á litinn)
*geisladiskahillu (í þessum stíl t.d.)
*flott rúmföt (þessi yrðu einstaklega vinsæl)
*dökk vínrauða mottu undir litla sófaborðið mitt
*hillusamstæðu
*bókahillu
*vöfflujárn
*rifjárn
*flott plaköt/myndir
*blandara með glerkönnu
*uppþvottagrind!
*eldfast mót
*ást og hamingju!! eða svona, hehehe...

Nei, að öllu gamni slepptu er auðvitað lang mest virði að þið komið og samgleðjist mér í fyrstu íbúðinni minni sem ég bý í ein.

Þetta blogg þjónaði tilgangi sínum ágætlega, þ.e. að ég hefði afsökun til að fresta því að læra fyrir prófið á morgun. Núna ætla ég að byrja á því.... vonandi.

fimmtudagur, febrúar 03, 2005

Jæja, ég flutti opinberlega inn á sunnudaginn og fyrstu dagana var þetta fremur fátæklegt hjá mér, það eina sem ég hafði var rúm og stóll og ógrynni af pappakössum í kringum mig... En eftir tvær ljómandi fínar ferðir í sænska risann þá er höllin næstum farin að standa undir nafni (og ég þarf að fara að leggja í heilmiklar samningaviðræður varðandi heimildina á kortinu mínu... en ég nenni ekki alveg að spá í það núna).
Ég er semsagt komin með æðislegan 3ja sæta sófa, sófaborð, sjónvarp og borð undir það, eldhúsborð og stóla.... hvernig á þetta að komast fyrir á 35 fm, maður hlýtur að spyrja sig...
Það liggur beint við að fara að plana innflutningspartý og afhenda fólki innkaupalista svo það viti hvað það má gefa mér í innflutningsgjöf, hehe.... en samt í fullri alvöru þá hef ég mjög svo takmarkað pláss og vantar ennþá ákveðna hluti þannig að það er ágætis hugmynd bara.

Eitt sem ég er gríðarlega ósátt við: ég er ekki ennþá komin með blessað internetið í íbúðina mína. Ég sótti um það á mánudaginn, þetta á nú varla að taka svona langan tíma? Erfitt að vera netlaus, mjög mjög erfitt. Þess vegna sit ég núna uppi í Árnagarði, alltaf lausar tölvur hér... en er að spá í að tygja mig heim og elda kjúklingabringu í tælenskri sataysósu. Yum.
Vonandi blogga ég næst úr höllinni.