föstudagur, maí 30, 2003

Í ágúst 1998 fórum við Svanhvít saman í enskuskóla í Brighton í Englandi, og kynntumst þar annarri íslenskri stelpu og fjörkálfi, Írisi. Vorum þar í 3 vikur, mikill glaumur og gleði og m.a. varð þessi limra til:

Two young girls from Iceland liked to drink
enough vodka to fill up a sink
their friend Lily-a
threw up in the bar
and created a terrible stink.


(það skal tekið fram að það er ekki eitt satt orð í þessari vísu, ónei....)


Annars er ég búin að gera fátt í dag, best að njóta þess að vera í fríi og gera ekki neitt.
Skrópaði á Vorvítamíni í gær vegna þreytu, vinnu og kökuleysis. Skamm og skell á bossann.
En svo er nú planið að skella sér í kórpartý í kvöld, sameiginlegt fyrirpartý alta og tenóra, yeah baby.... Þetta verður eiginlega bara svona stuðningshópur: "við erum næstum því karlmenn" partý... hehe, mér finnst fyndið.

fimmtudagur, maí 29, 2003

Nú á að vera komið inn kommentakerfi, thanx 2 Andri hinn ógurlegi...
Gáum hvort það gekk.

Eeeeek. Mér er illt í bakinu. Waitressing tekur svo sannarlega á líkamann... en ég fæ frí á föstudag og laugardag. Vibbí.

Já, fyrir þá sem ekki vita (þ.e.a.s. vit-lausa) þá er nafnið á síðunni tekið frá uppáhalds teiknimyndaþáttunum mínum þegar ég var lítil, Teddy Ruxpin, eða Bangsa Bestaskinn eins og flestir þekkja hann. Kíkið á þessa síðu og vonandi fáið þið smá nostalgíukikk...
Mig hefur svo lengi langað til þess að sjá þessa þætti aftur og hef verið að leita að þáttum til að downloada á netinu en ekkert hefur fundist en svo gaf Atli minn blessaður mér spólu með 3 þáttum sem hann keypti á eBay.
Það var hreinlega ólýsanleg tilfinning að sjá aftur opnunartheme-ið, eitthvað sem maður var svona eiginlega búinn að gleyma en rifjaðist svo aftur upp með miklum nostalgíuhrolli, Bangsi sjálfur, Gormur og Gamli kallinn, og svo auðvitað stóra ljósfjólubláa loðna skrímslið (eða the Wooly Whats-it).... Ég er bara búin að horfa á fyrsta þáttinn (þáttur nr. 17, fyrir þá sem hafa áhuga) og í honum borðar Gormur (Grubby) Uss-runna (Shush-Bush) svo hann missir málið og þarf að læra táknmál, og lærir það af heyrnarlausum álfum. Svo eru fullt af söngatriðum og endalaus sykursæt hamingja... og auðvitað fær hann málið aftur í lokin.
Jæja, þetta fannst mér allavega æðislegt þegar ég var lítil, fyndið að taka eftir öllum ,,góða boðskapnum fyrir börnin" sem er troðið inn... þetta er bara gott og gaman.

þriðjudagur, maí 27, 2003

Í dag er glatt í döprum hjörtum... því Elín er byrjuð að tjá sig á netinu, ójá.

Annars var líka glatt í mínu litla hjarta í kvöld þegar ég kláraði mína þriðju vakt á veitingahúsinu Hróa hetti í kvöld (sumarvinnan mín, ég er ein af þeim heppnu) því að ég klúðraði engu og þetta var róleg vakt, væntanlega út af nýbyrjaðri megaviku Domino's.
Vinnuveitendur mínir myndu líklega drepa mig fyrir að segja þetta... en guð blessi Domino's (fyrir að hafa megavikuna akkúrat núna þ.e.a.s.).
Allir kannast við stressið sem fylgir því að byrja í nýrri vinnu og þetta er sérstaklega ömurlegt í þessum veitingabransa þegar mikið er að gera, allir þurfa að fá matinn sinn akkúrat NÚNA, mar kann ekki á kassann, getur ekki svarað neinum spurningum, fólk er dónalegt við mann og mann hreinlega langar bara til að setjast á gólfið og grenja. En já, í kvöld gekk vel og það var gott. Jei.

Að lokum var einnig glatt í rúmlega 150 litlum hjörtum sem sátu á sviðinu í hátíðasal MH á laugardaginn. Hjörtun voru annars inní líkömum nýstúdenta með hvíta kolla, þetta var ekki einhver funky voodoo-athöfn eða árshátíð skurðlækna...
Ég var ein af þessum stúdentum og söng auk þess með kórnum og var hvorutveggja mjög gaman. Svo voru afhent verðlaun og það var skemmtilegt hversu margir góðir kórfélagar fengu verðlaun: Svanhvít, mín ektakvinna og danske pige fékk dönskuverðlaun, Ása Helga fékk frönsku- og enskuverðlaun og Marta fékk íslenskuverðlaun.
Svo fékk víst undirrituð verðlaun fyrir að vera dúx skólans og góðan árangur í efnafræði, eðlisfræði og stærðfræði, *hóst*nörd*hóst*.
Ojæja, ég er lærdómsnörd og hef verið það síðan ég var 6 ára þannig að það er ekkert nýtt og ég nenni bara ekkert að skammast mín fyrir það og er með tímanum að læra að verða soldið stolt af því. Gott hjá mér.

Eftir útskriftina (og alltof mikið af myndatökum) lá leiðin á Caruso með fjölskyldunni og Atla þar sem dýrindis matur var snæddur og Atli fékk sér ofurlítið í aðra tána. (Just tipsy, mah dahling, just tipsy). Svo missti ég af júróvisjón að mestu leyti en fór samt í tvö partý tileinkuð hátíðinni miklu. Annað partýið innihélt fullt af köttum, löngu útskrifaða MH-inga og volgt Lambrusco í plastglasi, á meðan hitt innihélt frían bjór og nýstúdenta. Samt var gaman í báðum :)
Svo lá leið um víðan völl, t.d. í partý hjá brjáluðum bítladýrkanda, á 11 þar sem ég sat í hásæti á gæruskinni (þar var einnig frír bjór, sweeet) og á Dillon þar sem var margt fólk og bjór sullaðist oná mig (en ég er ekkert reið lengur).
Atli rataði aftur á móti á Volkswagen-bjöllu og lagði sig þar, en ég fór heim og bakaði ammrískar pönnukökur í djammsnarl (vöffluvagninn hvað!).
Þannig að þetta var bara ágætt og óneitanlega mjög skemmtilegur dagur.