föstudagur, janúar 13, 2006

Tvörblogg

*Allir þessir menn með röndóttu treflana sína minna mig á búálfa.

*Í strætó áðan rétti gamall maður mér bækling sem á stóð ,,Ég fer aldrei í bað". Ó, þessir skemmtilegu litlu hlutir sem ég færi á mis við ef ég ætti bíl...

miðvikudagur, janúar 11, 2006

hahaha

ég var að enda við að finna blogg Gunnars nokkurs Scheving.
Svo virðist sem síðasta Októberfest hafi riðið honum að fullu.

sunnudagur, janúar 08, 2006

Áramótablogg - en bara smá

Vitur kona spáði fyrir mér í desember 2004 og það sem aðallega kom út úr því var að líf mitt myndi taka stórkostlegum og róttækum breytingum. Ég var svosem alveg til í að samþykkja það enda var ég á leiðinni að flytja á stúdentagarðana. En breytingarnar urðu töluvert meiri og núna, rúmlega ári síðar, get ég alveg sagt að sambandsslit, tvennir flutningar og nýtt samband hafa bara breytt lífi mínu heilmikið og til hins betra.

Good news everyone (já, ég er húkkd á Futurama þessa dagana): Ég léttist (!) yfir jólin og prófin, ég er búin að fá 2 einkunnir (báðar níur :D), ég er alveg að massa ræktina, skólinn byrjar á morgun og ég hlakka bara til... og síðast en ekki síst, ég var að baka sólblómabrauð og ætla að gæða mér á því núna.